|
Hmmm...
| |||||||||||||||||
...allt er vænt sem vel er bleikt...
Monday, July 31, 2006
Rétt í þessu var útvarpsmaðurinn á Rás 2 að segja frá innlendu plötu vikunnar en það er 100 íslenskir sumarsmellir. Hann sagði að á plötunni væri að finna klassísk íslensk dægurlög og svo inn á milli lög sem væru, eins og hann orðaði það, "nett hallærisleg". Því næst tilkynnti hann að nú ætlaði hann að spila eitt af þessum svokölluðu "nett hallærislegu lögum". Ég beið spennt enda er ég oft fylgjandi hallærislegri tónlist. Fyrstu tónar lagsins hljómuðu í eyrum mér og ég þekkti lagið á augabragði. Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég fagnað þessu lagavali gríðarlega, raulað með og jafnvel dillað mér örlítið. En ég var svo sjokkeruð á því að útvarpsmaðurinn skyldi hafa flokkað þetta lag sem "nett hallærislegt" að ég vissi ekki hvað ég átti af mér að gera. Lagið var ofur 80's smellurinn Lífið er lag sem tók þátt í undankeppni júróvisjon 1987 og lenti í 2. sæti. Nú skulum við hafa eitt á hreinu. Eiríkur Hauksson er ALDREI hallærislegur. Ekki heldur "nett hallærislegur". Rauðhærði rokkarinn er sennilega allra mest kúl söngvari Íslands fyrr og síðar! Og lagið er ekki heldur hallærislegt, ég er enn á því að við hefðum átt að senda það til Brussel frekar en Hægt og hljótt. Ég skal þó viðurkenna að Sigga Beinteins var "nett hallærisleg" sem bakrödd. Jafnvel örlítið meira en það. Fyrir þá sem hafa fylgst spenntir með gönguafrekum sonar míns þá er það helst í fréttum að hann gengur enn. Hins vegar er hann hættur að borða. Já, maður fær víst ekki bæði haldið og sleppt.
| |||||||||||||||||
| design by maystardesign by maystar | |||||||||||||||||