Hmmm...
Tenglar
Sunna Mímisdóttir stjórnmálafræðingur Netfang

<< August 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31
...allt er vænt sem vel er bleikt...

Tuesday, August 15, 2006

Free as a bird

Ég er frjáls eins og fuglinn - ég er frjáls!  Já já, ekki entist ég nú lengi í einkageiranum.  Ég held að það sé nú ekki honum sjálfum að kenna, meira svona rangur staður, rangur tími (rangt fólk, röng verkefni... ég gæti haldið endalaust svona áfram).  Ég held að ég sé betri manneskja fyrir vikið og hef örlítið skýrari hugmynd um hvað ég vil verða þegar ég verð stór.  Bara örlítið samt.

Ég hef hins vegar miklu skýrari hugmynd hvað mig langar ekki til að gera í framtíðinni.  Það er engin tilviljun að ég valdi mér meistaranám í íslensku.  Ég valdi það af því að mér finnst íslenska skemmtileg og ég hef mikinn áhuga á að vinna á móðurmáli mínu.  Ef ég hefði áhuga á að vinna á öðrum tungumálum þá hefði ég lagt þau fyrir mig.  Mér finnst undarlegt að lýsa yfir ánægju með menntun mína á þessu sviði, segja að hún sé eftirsóknarverð og láta mig svo tala og skrifa ensku allan daginn.  Ég er mikil tungumálamanneskja en enska hefur aldrei verið mín sterkasta hlið.

Á föstudaginn skálaði ég í freyðivíni og fékk nautasteik í matinn.  Það var góður dagur.  Á laugardaginn fór ég í kaffiboð aftur til fortíðarinnar.  Elli og frú buðu til ríjúníons og miðað við mannskapinn leið mér eins og ég væri komin aftur í MR.  Ljúft.  Gaman að sjá fólk aftur og gaman að kynnast börnum og mökum kunningjanna.  Á sunnudaginn slakaði ég á í faðmi fjölskyldunnar og skoðaði Ingunni Maríu krúttarapútt.  Sú er sæt maður!  Í gær lagði litla fjölskyldan á Kapló í verslunarleiðangur.  Valur var (nær)fataður upp í númerum sem hann hefur aldrei notað áður og við hjónaleysin töpuðum okkur í Skífunni.  Við fengum okkur hádegismat á kaffihúsinu hennar Höllu (þótt hún hafi ekki verið við) og nutum dagsins til hins ítrasta.  Í dag fór Valur aftur í leikskólann og við Óli versluðum enn meira.  Síðan klukkan 16:00 á föstudaginn held ég að ég sé barasta búin að njóta lífsins og hversdagsleikans meira en í allt sumar samanlagt!

Næstu daga tekur við örstutt "grasekkju" tímabil hjá mér.  Óli á 3 næturvaktir eftir sem þýðir að ég verð ein í vikunni - barnlaus og alveg makalaus!  Men hvað ég ætla að njóta þess að gera eitthvað fyrir mig.  Einhverjar hugmyndir hvað ég get gert?

P.s.  Ég biðst afsökunar á hvað þetta var yfirborðskennt og leiðinlegt blogg.
P.p.s.  Mig langar í nammi.


Sunna klukkan 21:31

Hjördís
August 16, 2006   02:20 PM PDT
 
þú getur alveg farið með mér að eyða peningum líka :) svona þar sem ég held að mér sé að batna af flensunni.

Það er mjög gott að heyra að lífið sé aftur orðið ljúft hjá þér.

Ertu búin að sjá bloggið hans Antons? Storm Sunna Large fer á kostum þar!
 


Previous Entry

Next Entry

design by maystardesign by maystar
design by maystar