Hmmm...
Tenglar
Sunna Mímisdóttir stjórnmálafræðingur Netfang

<< September 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02
03 04 05 06 07 08 09
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
...allt er vænt sem vel er bleikt...

Friday, September 01, 2006

Ruski karamba

Jæja jæja jæja... Frá mér hefur hvorki heyrst hósti né stuna í rúmlega hálfan mánuð.  En örvæntið ekki kæru vinir, ég er við hestaheilsu eða svona hér um bil.  Smá særindi í hálsi, örlítill hor í nebbaling og stöku hnerri hrjá mig en það er nú engin nýlunda í Sunnulandi.  Andleg heilsa er það sem skiptir máli.  Og hér er sko heldur betur sól í hjarta og gleði í lund.  Ég er komin heim.

Já, home sweet home.  Efstaleitið, leitið fagra, er nú mitt annað heimili.  Þar stunda ég vefstjórn af kappi með bros á vör.  Já, svei mér þá, ég brosi allan hringinn.  Marga hringi bara.  Síðan ég byrjaði 23. ágúst hef ég sennilega talað meira heldur en í allt sumar samanlagt.  Ég blaðra gjörsamlega út í eitt enda þarf ég að losa um uppsafnað blaður sem var við það að sprengja á mér skrokkinn uppi á Grjóthálsi í sumar.  Það tekur mig að öllum líkindum nokkrar vikur að ná núllstöðu á blaðurmælinum, þangað til verð ég eins og ég var í grunnskóla: síblaðrandi.

En talandi um skóla.  Nú byrjar háskólinn aftur og ég þykist ætla að gera stóra hluti þar í vetur.  Síðasta vor var ég komin með upp í kok af skóla en nú er kominn september og þá kemur alltaf þessi skóla-tilhlökkun upp í mér.  Einhverra hluta vegna held ég að þetta ár verði öðruvísi en hin fyrri, ég hafi endalausan kraft og nennu til að læra, ég vinni öll verkefni af miklum metnaði og eldmóði og þar fram eftir götunum.  Innst inni veit ég þó að þetta er bölvuð vitleysa og í miðjum október þegar ég þarf að fara að skila ritgerðum þá á ég eftir að vilja æla yfir tölvuna og hætta í skólanum.  En um daginn þá reiknaði ég það út að ef ég klára 30 einingar í vetur þá er ég nú bara svo gott sem búin, bara ein "lítil" mastersritgerð eftir og þá ætti ég að vera búin með skóla for good.  Sjitt hvað tíminn líður hratt.

Annars ákvað ég nú að poppa námið mitt aðeins upp í vetur og skrá mig í rússnesku í fjarnámi í Verzló.  Nú tel ég mig s.s. vera orðna 18 ára Verzlómær, frá toppi oní tær (engar brækur, komd' og vertu sprækur - hárið mitt er ljóst, með silíkonu brjóst, la la laaa laaa...) og eins og sönnum Verzlingi sæmir þá skrifa ég z í Verzló.  Rússneska, da!

Já já, vinna, skóli, mömmó, ég ætla sko að gera allt í vetur.  Og það með bros á vör!  Jeij.

Þangað til næst,
Little miss cheerful


Sunna klukkan 21:42

Hrund
November 8, 2006   02:29 PM PST
 
skilðig:)
Hrund
November 8, 2006   02:27 PM PST
 
skilðig:)
Sunna
November 4, 2006   05:01 PM PST
 
Síðan er búin að vera í lamasessi í lengri tíma og engin regla á því hvort maður kemst inn á hana eða ekki. Eigandinn er búinn að vera í jafnvel enn meiri lamasessi. Málið er að ég vinn við að setja efni á netið þannig að þegar ég er ekki að vinna þá kveiki ég helst ekki á tölvu nema af illri nauðsyn. Er enn að melta það með mér hvort ég ætla að halda þessu áfram en ég held að ég verði þá að fá mér nýja síðu.
Hrund
October 28, 2006   11:57 PM PDT
 
Hva...ég kemst inn á síðuna í fyrsta sinn í margar vikur og fagna gríðarlega...og þá er ennþá sama gamla færslan :*(

Á ég að skilja þetta sem svo að bloggdrottningin sé stigin úr hásæti sínu?!? Sakna pistla um nefrennsli og hátæknivætt heimili;)
Elín
September 14, 2006   08:59 PM PDT
 
Þú ert bæði með kvef og septemberveikina, hef oft fengið hana en læknast eftir ca 3-6 vikur...Núna er ég hins vegar ekki með neina svona septemberveiki og það í fyrsta skipti í fjölda mörg ár!!!
 


Previous Entry

design by maystardesign by maystar
design by maystar