|
Hmmm...
| |||||
...allt er vænt sem vel er bleikt...
Tuesday, July 11, 2006
Undanfarið hef ég fengið að heyra nokkrum sinnum spurninguna "af hverju ertu góðkunningi lögreglunnar?". Spurningin kemur til af því að ég titla mig "Sunna - góðkunningi lögreglunnar" á MSN. Sagan á bak við þetta er löng og undarleg og gott ef hún á ekki bara alveg erindi á netið. Látum hana flakka. Aðfararnótt laugardagsins 1. júlí var Óli á næturvakt og ég var ein heima með Val. Við mæðginin vorum bæði farin að sofa en klukkan hálf eitt vaknaði ég upp við brjáluð læti. Útidyrunum var skellt mjög fast og fyrir utan var fólk með læti. Ég gerði ráð fyrir að það væri partý í húsinu en fannst samt óeðlilegt hvað lætin voru mikil. Þau voru það mikil að Valur vaknaði við þau. Ég fór strax inn til hans til að svæfa hann og þá heyrði ég að konan, sem býr í íbúðinni við hliðina á okkur, kom út í dyrnar hjá sér og byrjaði að öskra af öllum lífs og sálar kröftum: "MORÐINGJAR, ÞJÓFAR, LÍFSMORÐINGJAR!!!" Þessu fylgdu einhver blótsyrði sem ekki sæmir að birta á netinu. Síðan þrumaði hún hurðinni hjá sér þannig að ég hélt að lásinn myndi brotna. Ég fylgdist með öllu í gegnum gæjugatið á hurðinni hjá mér. Hún læsti að innan hjá sér með keðju en eftir smá stund reif hún keðjuna upp aftur, kom aftur í dyrnar og öskraði enn meira á þjófa og morðingja sem áttu að skila henni einhverju. Svo skellti hún hurðinni aftur og ekki af minna afli en í fyrra skiptið. Ég varð nú bara skítlogandi hrædd við skassið og fór inn í stofu til að tala við Óla á msn. Þá tók konan upp á því að æða út á svalir hjá sér (á náttkjólnum) og öskra þar á meinta morðingja og þjófa. Svalahurðin hlaut sömu örlög og hin hurðin og ég bjóst við að glerið myndi brotna. Óli var ekki á msn og hafði ekki tíma til að tala við mig þegar ég hringdi í hann. Hann lofaði að hringja í mig þegar hann væri búinn að lesa fréttir. Ég þurfti því að bíða róleg og það var nú hægara sagt en gert. Á meðan ég beið kom löggan. Einhver hleypti þeim inn á ganginn og þegar ég lagðist á gæjugatið mitt sá ég þrjár löggur standa fyrir utan íbúð kellingarinnar. Ég ákvað að opna og spyrja hvað væri í gangi. Löggan sagðist nú vera að reyna að komast til botns í því máli. Það hefði borist tilkynning um læti frá fyrstu hæð, miðju, og svo spurðu þeir hvort ég hefði orðið vör við eitthvað. Ég lýsti því sem hafði gerst og stuttu seinna kom nágranni minn af efri hæðinni niður og talaði líka við lögguna. Við tjáðum okkur um að við héldum að skassið væri nú eitthvað tæpt á geði því hún hefði oftar en ekki hegðað sér undarlega þótt þetta væri í fyrsta sinn sem morðingjar og þjófar væru inni í myndinni. Löggan ákvað að gera ekkert í málinu þar sem konan var orðin róleg og ekkert heyrðist út úr íbúðinni. Auk þess voru engir morðingjar eða þjófar sjáanlegir. Já, svona var nú það. Þetta voru þriðju afskipti mín af löggunni á stuttum tíma. Í fyrsta skiptið hringdi ég til að kvarta undan hávaða um miðja nótt í miðri viku. Í annað skiptið hringdi ég vegna þess að þegar Óli fór einn laugardagsmorguninn niður með Val í fanginu að ná í Fréttablaðið gekk hann fram á sofandi róna sem lyktaði eins og sprittflaska. Mér fannst í hæsta máta ógeðfellt að hafa áfengisdauðan mann í anddyrinu hjá okkur þannig að ég lét hirða hann. Ég fylgdist með samskiptum hans við lögguna og þau voru vægast sagt nokkuð skondin. Löggan spurði hvort hann byggi í húsinu og hann neitaði því. Því næst var hann spurður hvar hann byggi. "Það er langt í burtu... in a galaxy far far away..." Löggan bað hann vinsamlegast að fara heim til sín og sofa þar. Maðurinn samþykkti það og arkaði beint út á strætóstoppustöð þar sem hann talaði við sjálfan sig næsta hálftímann af miklum ákafa. Honum var svo mikið niðri fyrir að honum féllust hendur. Ég hló. Alla vega þangað til ég fór fram á gang. Lyktin var viðurstyggileg! Já, eftir þessi samskipti mín við lögguna má með sanni segja að ég sé góðkunningi lögreglunnar. Annars er það helst í fréttum að ég bauð góða kvöldið þegar ég mætti í vinnuna klukkan rúmlega 8 í morgun. Daman í móttökunni grenjaði úr hlátri. Komment (2) Beinn tengill Wednesday, June 28, 2006
Í gær var 27. júní. Í gær varð Valur 9 mánaða.
Litli Liverpool-kúturinn á Mallorca Valur fagnaði 9 mánaða afmæli sínu hóstandi úr sér lungunum með hita og hor í nebbanum. Ég fagnaði 9 mánaða afmæli hans læst í baki með hita, höfuðverk og beinverki og reyndi að sinna litla sjúklingnum. Óli fagnaði 9 mánaða afmæli hans með litlum og sundurslitnum svefni eftir næturvakt. Ástandið var sorglegt á Kaplaskjólsveginum. Ástandið er nú eitthvað aðeins að skána. Ég er risin úr rekkju, nánast hitalaus og öll að koma til. Valur er í pössun hjá afa sínum og skemmtir sér vafalaust alveg konunglega þar og Óli fær að sofa í friði í dag. Hvernig væri nú að enda þetta blogg á einskis nýtum fróðleiksmola? Ef ég hefði orðið ólétt um leið og Valur fæddist þá væri ég að því komin að eiga núna. Sjitt hvað ég er fegin að það gerðist ekki. Þá hefði mér sennilega liðið eins og fíl, ólétt forever! (Meðgöngulengd fíla er 22 mánuðir, tvöföld meðganga kvenna væri 18 mánuðir - pretty close...) Komment Beinn tengill Friday, June 23, 2006
Í gær horfði ég á Fótboltakvöld. Það er svo sem ekki í frásögur færandi. Ég ætla nú samt að segja frá því. Myndataka sjónvarpsstöðvanna á Íslandi er ekki jafnfullkomin og myndataka á stærri fótboltaviðburðum eins og t.d. HM eða enska boltanum. Sumir myndu jafnvel ganga svo langt að kalla myndatöku á íslenskum fótbolta ansi frumstæða. Ein myndavél er staðsett ofarlega fyrir miðjum vellinum og skal hún sjá um að miðla leiknum heim í stofu. Ef það er rigning sést lítið sem ekkert á völlinn fyrir dropum eða subbulegri tusku sem notuð er til að þurrka af linsunni. En þegar það sést út á völlinn minnir það helst á afbrigðilegt pool með engum kjuðum. 22 miðlungsstórar kúlur, aðgreindar með litum, elta eina litla hvíta kúlu. Eníveis... Ég var að horfa á leik Breiðabliks og Fylkis og furðaði mig á því hvernig íþróttafréttamaðurinn gat nefnt alla leikmennina með nafni. Það sást ekki alltaf í númerið á bakinu á þeim og þeir voru nú flestir mjög áþekkir í útliti, hárið með þennan klassíska íslenska kæfulit og búningarnir eins á litinn. Meira sást ekki. Einn leikmaður skar sig þó úr hópnum. Hann var alveg ljóshærður, síðhærður í þokkabót, og alveg kúkabrúnn. Mér fannst þetta óendanlega fyndið, sá fyrir mér FM-hnakka dauðans með aflitaðar strípur. Þessi kúkabrúni glókollur skoraði tvö mörk þannig að ég ákvað að staldra aðeins við sjónvarpið og sjá hvort það yrði ekki tekið viðtal við hann eftir leikinn. Langaði að sjá hvort ég hefði rétt fyrir mér, hvort hann væri í raun og veru eins og leðurtaska eftir alla ljósatímana. Biðin var sko þokkalega þess virði! Það var tekið viðtal við kauða en viti menn, hann var alls enginn FM-hnakki. Up close and personal leit hann nú bara út eins og Eggert Þorleifsson! Ljós á hörund, með ljóst alskegg og náttúrulega ljóst hár. Þvílíkur bömmer sem það hlýtur að vera að komast að því að maður lítur betur út sem pínulítil skítaklessa á sjónvarpsskjánum heldur en í fullum skrúða í einkaviðtali. Greyið. Ég hló. Komment (1) Beinn tengill Wednesday, June 21, 2006
...með blóm í haga... og vonandi smá sólskin. Ég held ég sjái í bláan himin. Ég sit reyndar nokkuð langt frá glugganum svo að þetta getur vel verið hilling. Mér sýnist samt örlítill sólargeisli þröngva sér inn um gluggann og leggjast á tölvu samstarfskonu minnar. En ég er orðin svo sólþyrst eftir endalaust langt rigningartímabil að þessi sólargeisli, örlitli vonarneisti, gæti líka verið tálsýn ein. Annars hef ég nú fulla trú á að veðrið fari að batna. Elín kemur heim frá Svíþjóð í dag og hún lofaði að taka sólina með sér. Hún getur ekki svikið það. Ég heyrði í útvarpinu áðan að þurrir dagar í júní hefðu verið ansi fáir. Alveg heill 1 dagur sem ekki rigndi neitt. Hvenær var það eiginlega? Var ég úti þá? Ég man allavega ekki eftir þessum degi. Nei, þetta hlýtur að fara lagast. Ekkert er svo slæmt að það vari að eilífu. ...ja nema kannski helvíti. En það er of kalt hérna til að við séum komin á þann arma stað. Hálfa leið kannski... rennblaut og ísköld svo að við fuðrum ekki upp um leið og við komumst á áfangastað. Jæja, þetta blogg er farið að snúast upp í vitleysu. Þá er mál að hætta. Komment Beinn tengill Monday, June 19, 2006
Ég er að spá hvort lesa megi eitthvað í raunir mínar það sem af er degi. Er þetta bara byrjunin á því sem koma skal? Ef svo er þá held ég að það sé best fyrir mig að koma mér heim og leggjast undir sæng. Ég fór með Val í leikskólann í morgun. Ég þurfti að fara með vagninn líka. Um leið og ég tók vagninn út úr bílnum byrjaði að rigna. Hellirigna! Ég var svona 15 sekúndur að hlaupa inn með vagninn og tókst á þeim tíma að rennbleyta ALLT! Nema Val, hann sat furðu lostinn inni í vagninum og skildi ekkert í manískri hegðun móður sinnar. Nú rétt í þessu var ég að eyðileggja besta pennann minn. Þetta er svona filtpenni, Faber-Castell, ég tók lokið af honum á afar glæsilegan hátt með þeim afleiðingum að penninn skaust upp í loftið og lenti á gólfinu með oddinn niður. Oddurinn endaði í öreindum! Hann splittaðist í 13 þræði sem er nokkuð mikið miðað við aðeins 0,5 mm breiðan odd. Ég get svarið það, hann lítur út eins og skúringarmoppa! Allir þræðirnir eru beygðir í 90° þannig að það er nokkuð út séð um að þessi penni verður aldrei notaður til að skrifa með aftur. Bíðið við, nú rétt í þessu voru 2 þræðirnir að brotna af. Mig vantar nýjan penna. Ofan á allt saman gleymdi ég að mæta í bleiku í dag og tölvukerfið virkar ekki hjá mér. Á ég að vera heima í dag? Komment (2) Beinn tengill Friday, June 16, 2006
Ég tek orð mín til baka. Ég er ekki lúði dagsins. Lúði dagsins er klárlega Erla, útvarpsmaður í Brot úr degi á Rás 2. Hún skellti lagi í loftið en gleymdi að slökkva á míkrófóninum sínum á meðan og spjallaði við einhvern allan tímann sem lagið var í spilun. Ha ha! Lúði! Það er klárlega meiri lúðaskapur að gleyma að slökkva hljóðið heldur en að fatta ekki að kveikja á því. Komment (4) Beinn tengill
Ég er officially orðin lúði dagsins. Og hvað hef ég svo sem gert til að verðskulda þann titil? Látum okkur sjá... Ég hlusta alltaf á Rás 2 á netinu þegar ég er í vinnunni. Dagurinn í dag er engin undantekning. Síðan ég mætti í vinnuna fyrir rúmum klukkutíma hef ég setið sveitt við tölvuna við að reyna að finna bilun í henni vegna þess að Rás 2 virkaði ekki. Bylgjan virkaði ekki heldur. Ég breytti öllu sem mér datt í hug að breyta og gafst að lokum upp. Ég íhugaði alvarlega að senda póst í Efstaleitið og kvarta en þar sem ég vann einu sinni við að svara slíkum sendingum ákvað ég að láta það ógert. Þá sá ég að tölvan mín var stillt á mute. Ég stóð upp til að fá mér morgunmat áðan. Labbaði inn í mötuneyti og fann engan morgunmat, bara kökur. Ég umbreyttist í lítið barn á jólunum og réð ekkert við mig fyrir framan kræsingarnar. Ég tók kúfaðan disk af kökum með mér inn á skrifborð aftur en gleymdi gaffli. Ég nennti ekki að standa upp aftur þannig að ég notaði bara puttana. Núna er ég með súkkulaði út um allt og er subbulegri en Valur þegar hann fær að borða sjálfur. Og til að kóróna þetta allt saman held ég að það örli á smá þynnku hjá mér. Ég fór að hitta bekkinn minn úr MR í gær. Ég drakk einn bjór fyrir mat, annan eftir mat og fékk svo eitt opal-skot í boði hússins. Ég skammast mín fyrir að viðurkenna þetta. Ég er með hausverk. Syni mínum finnst ég líka vera lummó. Hann nennti ekki einu sinni að kveðja mig þegar ég fór með hann í leikskólann. "Farðu frá kelling, ég er að leika mér!" 10 daga aðlögunarferli í leikskólanum varð að 5 dögum. Hann þarf ekki meira, tekur ekkert eftir því þegar maður fer og kvartar aldrei. Krakkar og dót er allt sem hann þarf. Ég hefði þurft aðeins lengri aðlögunartíma. Komment Beinn tengill Wednesday, June 14, 2006
Þeir sem halda því fram að það sé alltaf rok í Vesturbænum eru ekkert annað en skrökvarar og lygalaupar. Það er alltaf gott veður í Vesturbænum, alla vega betra en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Þegar ég vann í Efstaleitinu var alltaf verra veður þar en heima í Vesturbænum. Á veturna var nær undantekningarlaust snjór um leið og maður keyrði inn á bílastæðið þótt það væri algjörlega snjólaust heima. Nú vinn ég enn lengra úti á landi, nánar tiltekið uppi á Grjóthálsi og ég get svarið það, ég held bara að ég hafi aldrei komist í annað eins rokrassgat! Veðrið heima, þegar ég lagði af stað í vinnuna í morgun, var bara allt í lagi. Eftir því sem ég fjarlægðist Vesturbæinn meira urðu skýin sífellt grárri og drungalegri og í Ártúnsbrekkunni byrjaði að rigna á mig. Þegar ég steig út úr bílnum fyrir utan höfuðstöðvar Össurar var komið brjálað rok, rigning og í ofanálag var ískalt! Um daginn sat ég í vinnunni og hlustaði á haglél berja gluggana í miðjum maí! Ég var í miðju samtali við Óla sem sat í makindum sínum heima og tilkynnti mér að það væri sól og blíða í Vesturbænum. Það var heiðskírt þegar ég fór í vinnuna og enn sól og blíða þegar ég kom heim. Allan tímann var rok, rigning og haglél hérna uppi í sveit. Það er aldrei rok í Vesturbænum. Þeir sem halda því fram hafa bara fordóma gegn honum, svo mikla að þeir hafa ekki svo mikið sem tiplað litlu tánni vestur fyrir Snorrabraut. Fólk sem kemur aldrei vestur í veðurblíðuna ætti ekki að halda svona vitleysu fram. Það er hins vegar alltaf rok á Seltjarnarnesi. En það er nú líka bara dreifbýli. Komment (1) Beinn tengill Sunday, June 11, 2006
Jæja, þá er litla fjölskyldan á Kaplaskjólsveginum komin heim úr Spánarreisu. Við skelltum okkur til Mallorca og slökuðum á í eina viku í sundlaugargarðinum, sleiktum sólskinið, sötruðum bjór og lékum okkur. Svo sem ekki mikið meira að segja um það. Nú er fríið búið, ég er komin í vinnuna aftur, Óli byrjaður á næturvöktum á útvarpinu og Valur byrjaður í leikskóla. Svaka stuð. Annars langaði mig nú alveg ótrúlega til að tjá mig örlítið um þær hræringar sem hafa átt sér stað í stjórnmálunum síðustu daga. Að jafnaði finnst mér blogg um stjórnmál leiðinleg og stjórnmál leiðinleg í heild sinni svona oftast. Þetta kann kannski að hljóma undarlegt hjá stjórnmálafræðingnum sjálfum en let's face it, þeir sem eru í stjórnmálum er nánast alltaf leiðinlegir (undantekningar eru Guðni Ágústsson og Alfreð Þorsteinsson sem gefa áramótaskaupunum smá lit), málefnin eru mjög oft hrikalega leiðinleg og stjórnmálamenn eru með heimskara fólki á landinu. Þeir sem sækjast eftir því að vera í stjórnmálum eru nefnilega einmitt þeir sem ættu alls ekki að fá að stjórna neinu. Þeir sem væru hæfir til þess að stjórna hafa vit á því að láta hæfileika sína nýtast annars staðar. En nú get ég vart orða bundist. Ég verð einfaldlega að tjá mig um þessa ríkisstjórnaruppstokkun. Ég fagna því heitt og innilega að Framsóknarflokkurinn sé að gefa upp öndina og eftir sveitarstjórnarkosningarnar datt okkur Óla í hug að flytja í Hafnarfjörð. Þar hlýtur að vera afskaplega gott að búa því Framsóknarflokkurinn fór úr því að vera í dauðaslitrunum í það að vera alveg algjörlega steindauður. Þetta mætti gerast á landsvísu. Þykjustu-ábyrgðartilfinning Halldórs Ásgrímssonar með tilheyrandi afsögn og dramatík held ég að sé bara the easy way out hjá manni sem nennir ekki að vinna lengur. Davíð er farinn þannig að hann þarf að hugsa sjálfur - ekki hans sterkasta hlið - og hann á rétt á vænum eftirlaunum. Af hverju ætti maður að púla við að halda uppi flokki sem enginn vill kjósa lengur? Ég myndi líka hætta í þessum sporum. Hamagangnum lauk í gær með hlægilegasta útspili þessa sorglega flokks. Þrír nýir ráðherrar og smá flutningur á ráðuneytum. Ég hló hátt og innilega þegar ég komst að því hver næsti utanríkisráðherra verður. Ef það er einhvern tímann ástæða til að skammast sín fyrir að vera Íslendingur á alþjóðavettvangi þá er það núna. Og það besta er, eina verkefnið sem liggur í utanríkisráðuneytinu um þessar mundir, varnarsamningurinn, hún ætlar ekki einu sinni að koma að því máli! Hvað ætlar hún þá að gera í vinnunni??? Spila solitaire og websudoku? Já, góðan daginn. Íslensk stjórnmál eru orðin að slíkum og þvílíkum farsa að það er ekki nokkru lagi líkt. Ætti maður að skipta um ríkisfang? Annars er þetta góður dagur. Ísland vann Svíþjóð í handbolta. Það er vel. Næst vinnum við júróvisjon. Og þá verður Sigmar ekki kynnir. Komment (3) Beinn tengill Tuesday, May 23, 2006
Jæja, nú skal bloggað. Mál málanna er að sjálfsögðu júróvisjon. Ég held svei mér þá að ég hafi ekki skemmt mér svona yfir keppninni í nokkur ár og er alveg himinlifandi yfir úrslitunum. Hið ótrúlega gerðist í ár, Finnar unnu. Í fyrra sagði Tomas Lundin, finnski júró-spekingurinn, að Finnar hefðu reynt allt en algjörlega án árangurs. Og þeir höfðu reynt allt, bókstaflega ALLT - nema að senda Lordi. Oft hafa þeir verið alveg skelfilega lélegir, stundum hrikalega misskildir og af og til alveg einstaklega óheppnir. Svo loksins þegar þeir sætta sig við orðinn hlut, gefa skít í keppnina og senda þungarokksskrímsli í endalaust þykkum latex-búningum þá er eins og Evrópa átti sig skyndilega, Finnar eru kúl! Það liggur nú við að maður vorkenni WigWam örlítið fyrir þeirra hlutskipti. Þeir sögðu í viðtali fyrir keppnina í fyrra: "Hard rock vinner ikke Eurovision. Aldrig" Það hefur hér með verið afsannað. Annars var tvennt sem mér fannst skyggja á keppnina. Í fyrsta lagi voru gestgjafarnir þeir dónalegustu í sögu júróvisjon þegar þeir búuðu á allt og alla sem ekki voru fullkomlega þeim að skapi. Í öðru lagi var íslenski kynnirinn sá versti í 20 ára sögu Íslands í keppninni. Brandararnir hans voru lélegir, skrifaðir niður fyrirfram, móðgandi á stundum og alveg endalaust ófyndnir. Svo var hann dónalegur í ofanálag, gagnvart keppninni og áhorfendum. Sigmar Guðmundsson var hársbreidd frá því að eyðileggja júróvisjon. Og það hefði tekist ef Finnar hefðu ekki unnið. Þá hefði ekkert jákvætt vegið á móti leiðindunum í honum. Dæmi um komment Sigmars: Það voru mun fleiri svona dæmi. Hann hrósaði sérstaklega þeim söngvurum sem héldu ekki lagi og minntist ekki einu orði á þá söngvara sem báru af. Sjitt hvað hann var lélegur. Næst geri ég þá kröfu að RÚV vandi valið á lýsanda Júróvisjon. Það er fátt leiðinlegra en lýsandi sem hefur ekki gaman af keppninni (eins og ég heyrði fullyrt um Sigmar fyrir stuttu), hefur engan húmor og hefur ekki snefil af tóneyra. Mín uppástunga að næsta lýsanda er snillingurinn Gísli Einarsson - út og suður. Sá maður er gangandi brandaravél af náttúrunnar hendi og væri frábær í þetta. Og hana nú! Fannst einhverjum Sigmar standa sig vel? Komment (6) Beinn tengill | |||||
| design by maystardesign by maystar | |||||