Sonur minn byrjar í leikskóla og ég fæ eyrnabólgu. Er það ekki eitthvað öfugsnúið?
Ég fór til læknis í morgun vegna þess að ég er búin að vera með hellu fyrir eyrunum í nokkra daga. Mér líður eins og ég hafi verið að koma út af mjög háværum tónleikum, ég er með stanslaust suð fyrir eyrunum. Venjulega kippir maður sér nú ekki upp við slíkt en þegar eftirköst tónleikanna vara í tæpa viku þá verður þetta dálítið þreytandi til lengdar. Einkum og sér í lagi vegna þess að ég fór ekki á neina tónleika. Það hefði nú verið skömminni skárra held ég.
Ég fékk eyrnadropa sem eiga að losa helluna og suðið. Ég ákvað að skella þessu bara strax í eyrað á mér þegar ég var búin að leysa lyfseðilinn út. Ég opnaði túpuna og skvetti gumsinu inn. Droparnir voru eins og bráðið smjör og eyrun á mér voru eins og smjörsteiktir sveppir eftir meðferðina. Afskaplega glansandi og lekker.
Eftir þetta tók ég upp símann og hringdi eitt stutt símtal. Smjördroparnir klesstust mjög auðveldlega í símann og þegar ég hætti að tala leit hann út eins og, ja, ekki smjörsteiktur sveppur kannski. Frekar eins og smjörsteiktur sími.
Þegar ég kom í vinnuna ákvað ég að þurrka smjörið úr eyrunum á mér með Dominos servíettu. Mér leið eins og ég hefði þurrkað hvítlauksolíu út úr eyrunum á mér.