Helgin Monday, July 24, 2006



Jæja, hér kemur helgaröppdeitið.  Ljómandi góð helgi er liðin og við hefur tekið hundleiðinlegur mánudagur með tilheyrandi geispi og þreytu og einskis til að hlakka til... ja, annars en að fara heim úr vinnunni á eftir.

Herra Bjössi og Frú Erna giftu sig á laugardaginn og buðu til stórglæsilegrar veislu.  Ég dansaði meira en orð fá lýst og var á háum pinnahælum allt kvöldið!!!  Já, ég sagði HÁUM PINNAHÆLUM, takk fyrir takk!  Ég hafði keypt mér ýkt flottan kjól í Svíþjóð og fannst ekki viðeigandi að vera í adidas eða pumaskóm við þannig að ég splæsti í támjóa spariskó með pinnahæl.  Miss Jay, runway diva úr ANTM, hefði nú sjálfsagt ekki gefið mikið fyrir tilburði mína á hælunum en ég datt þó alla vega ekki þrátt fyrir afar riskí dansspor á köflum.  Mætti jafnvel kalla þau hreint og beint heimskuleg miðað við klæðaburð og áfengismagn.  En ég komst heim á endanum ósködduð og alsæl.

Elsku Erna og Bjössi, takk fyrir okkur.  Þetta var frábært.

En talandi um spor.  Laugardagurinn var einmitt merkilegur fyrir aðrar sakir líka.  Sonur minn ákvað skyndilega að það væri óþarfi að henda sér alltaf í gólfið og skríða til að komast á milli staða.  Fyrir hádegi gekk minn maður eins og herforingi enda vegleg verðlaun í boði fyrir hvert stigið skref.  Foreldrarnir gengu um stofuna með gráfíkjur í lófanum og göngugarpurinn elti gotteríið samviskusamlega.  Eftir hádegisblundinn átti auðvitað að endurtaka leikinn en þá beit Valur það í sig að hann gæti ekki með nokkru móti gengið.  Hann var frekar til í að fórna namminu heldur en að taka nokkur skref.  Afi hans kom svo og sótti hann áður en við fórum í brúðkaupið og hann trúði auðvitað ekki orði af því sem við sögðum.  Sem betur fer vorum við forsjál og tókum fyrstu skrefin upp á video.  Við eigum sönnunargögn.  Hér er einmitt mynd af Val að labba til pabba síns.

Í gær hélt Valur uppteknum hætti.  Hann ætlaði sko ekki að ganga.  Þó tók hann tvö skref hjá ömmu sinni og afa og tvö heima þannig að hann kemst sjálfsagt aftur í stuð bráðlega.

Við skelltum okkur í göngutúr um Elliðaárdalinn í gær.  Ástandið hleypti okkur víst ekki lengra út úr bænum þann daginn.  En göngutúrinn var fínn og veðrið mjög gott.

Já, góð helgi er liðin.  Nú er bara að byrja að telja niður fyrir næstu helgi.


1 Komment


Hjördís
July 26, 2006   12:45 AM PDT
 
já þetta var geggjað skemmtilegt og flott brúðkaup og ég get staðfest það að Valur gekk, hann gekk meira að segja í fangið á mér á laugardagsmorgun :)

það styttist í næstu helgi en þá fer ég í annað brúðkaup og á tapas-barinn í afmæli. Það slær nú samt líklega ekki út skemmtun síðustu helgar :)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments