Those were the days Monday, August 07, 2006



Er hægt að komast nær árinu 2001 en þetta???


Stefán í partýi í Reykjafold í apríl 2001


Stefán í partýi á Arnargötu í ágúst 2006

Ekki nóg með að maðurinn hafi ekki breyst hætishót á þessum 5 árum sem liðin eru heldur stillir hann sér nákvæmlega eins upp fyrir myndavélina og gott ef hann er ekki bara með sama bindið!  Ef þetta er ekki að vera trúr þemanu þá veit ég ekki hvað...

I've had the time of my life... Men ó men hvað ég skemmti mér mikið í gær.  Útihátíðin Arnargata 2006 var án efa besta útihátíðin í ár.  Engin nauðgun, ekkert dópmál, blast from the past frá árinu 2001, fáránlega mikið magn af áfengi innbyrt, varðeldur, flugeldar og ég veit ekki hvað og hvað.

Pottþétt Gelgja strikes back.  Comeback diskurinn svínvirkaði og var á repeat allt kvöldið.  Tribjútið til ársins 2001 var æðislegt.  Allt var í anda ársins 2001, föt jafnt sem hegðun og drykkja.  Mér leið eins og ég væri 21 árs all over again.

Ég mætti með myndavél í partýið en ég er ömurlegur ljósmyndari.  Ekki nóg með að ég sé ekkert gríðarlega hittin manneskja (sbr. þessa mynd)

 heldur er ég líka alltaf svo upptekin við að skemmta mér að ég gleymi að taka myndir.  Það kemur sér því einstaklega vel að eiga góða vini sem taka myndavélina að sér og fylla kortið fyrir mann.

Annars eru komnar inn 99 myndir frá kvöldinu hér.

Nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga þegar myndirnar eru skoðaðar:

Þetta var kvöldið þar sem mér þótti sniðugt að reyna að koma tungunni eins langt út úr mér og mögulegt er.  God knows why...

Þetta var kvöldið þar sem allir voru á sneplunum

Þetta var kvöldið þar sem rauðir leðurbolir þóttu kúl aftur

Já, svona var nú það.  Myndirnar tala sínu máli.


5 Komment


Anna Ey
August 12, 2006   08:41 PM PDT
 
Ótrúleg breyting á einum manni!!

Annars bolurinn flottur Sunna, geggjaður!
Hjördís
August 8, 2006   03:21 PM PDT
 
ha hvaða frelsi? því að óli sé hættur á næturvöktum?
Hulda og Gummi
August 8, 2006   02:15 AM PDT
 
Hæ og takk fyrir í gær... spurning um að ritskoða myndbirtinguna á síðunni, ég verð aldrei kjörin forseti ef þessi mynd kemst í blöðin ;) Kveðja, Hulda og Gummi segir hæ
Sunna
August 7, 2006   11:58 PM PDT
 
Mín vegna má 2001 fílingurinn ná eins langt og maður vill. Ég hef þó ekki í hyggju að vera svona rosalega drukkin dags daglega...

Næstu helgi veit ég ekki hvað ég ætla að gera að öðru leyti en að ég ætla að fagna frelsinu ógurlega.
Hjördís
August 7, 2006   11:52 PM PDT
 
Stefán er með baug á fingri á seinni myndinni - það er breyting.

Það var svo gaman í gær, ég á eftir að lifa á þessu, alla vega fram að næstu helgi. Hvað eigum við að gera þá? Var nokkuð samið um að 2001 fílingurinn næði bara til eins kvölds? Ekki man ég eftir því!

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments